|
|
12.01.2007 13:16:58 / heidarh
Ég verð að viðurkenna fyrir alþjóð að á þessum fáu kvöldsstundum
sem ég hef verið á Kaplaskjólsveginum hef nánast
undantekningarlaust horft á kvikmyndir. Nú í þessari viku ákvað ég
að skella mér á hryllingsmyndir en ég á eftir að sjá nokkrar
klassískar í þeim hópi. Úrvalið á næstu videoleigu er ekki upp á
marga fiska en þó fann ég eina klassíska sem ég hafði séð ekki
fyrir alls löngu. Það var mynd frá árinu 1982 sem heitir því
skemmtilega nafni The Thing. Myndin skarta Kurt Russel í
aðalhlutverki ásamt mörgum öðrum leikurum sem eru frægir
aukaleikarar í dag. Það er svo merkilegt með sumar myndir af þessu
tagi, að þó svo að hugmyndin um myndina og hvernig allt er sett í
búning t.d. geimveran er háttað jafn skringilega kemur það stundum
þannig út að myndin verður góð. Í þessu tilviki gerir er það
raunin, allavena að mínu mati. Myndin er reyndar endurgerð myndar
frá árinu 1951 og er einnig byggð á vísindaskáldsögu John W.
Campbell Jr. frá árinu 1938, "Who goes there?"
Það sem gerir myndina góða að mínu mati er samspil umhverfis
(Suðurskautslandið), persónurnar sem eru einangraðir vísindamenn,
gæði kvikmyndatöku gefur myndinni vissan dulrænan blæ og svo er
hvernig geimveran kemur fram mjög frumlegt. Það er
einnig glæsilegt hvernig haldið er á spilunum varðandi hvernig
fór fyrir Norsku vísindamönnunum sem fundu geimveruna. Það gefur
myndinni gott start. Ég vill meina að sá hlutur sé stórt atriði ef
markmiðið er að hræða líftóruna úr áhorfendum.
Það var einhverntíman í nóvember minnir mig að á
miðvikudagskvöldi var sýndur á RÚV einkar áhugaverður þáttur um
hver væri lykillinn að því að gera kvikmynd sem yrði "hittari". Var
rætt við fjölmarga framleiðendur, leikstjóra, handritshöfunda,
leikar o.fl. um þetta mál. Niðurstaðan var eiginlega sú að
reglurnar eru þær að reglurnar eru engar. Það er ekki hægt að segja
hvernig hin góða mynd verður til. Þetta er allt samspil söguþráðar,
umhverfis, leikara, persóna, tónlistar, búninga o.frv.

Russel þurfti að taka á honum stóra sínum til að
ráða niðurlögum geimverunnar. Hvað hefði Rúnar Óla gert?
»
06.01.2007 14:52:33 / heidarh
Það liggur við að ég þekki
hverja þúfu á milli Reykjavíkur og Borgarness. Slíkur hefur
þeytingurinn verið á mann fram og tilbaka á milli þessara
staða, að maður man varla á hvorum staðnum maður er þegar
maður vaknar á morgnana. Þegar maður lítur út um gluggan á
morgnana býst maður við að sjá klettinn á Kveldúlfsgötunni en
við blasa blokkirnar í Hagahverfinu.
Enn og aftur er það körfuboltinn er efstur á
baugi. Nú er það stórleikur á milli minna gömlu félaga í Skallagrím
og Keflavík. Leikurinn er á eftir og verður meira segja sýndur í
beinni á RÚV, en það þykir tíðindum sæta á 21 öldinni að íslenskur
körfubolta fái pláss í skjá landsmanna. Spurning hvort að RÚV fái
einhverja local hetju til að lýsa með Samúel Erni líkt og í
Hólminum fyrir viku síðan. Þá var Hreinn Þorkelsson að lýsa en hann
ku hafa verið að kenna Rúnari nokkrum Óla íslensku og dönsku í
Hólminum einhverntíman fyrir löngu síðan. Nokkur nöfn koma upp í
hugan sem líklega kandídata í að lýsa. Silli Ara væri hentugur en
myndi líklega ekki komast í gegnum ritskoðun, Indriði gæti kannski
lýst en eitthvað myndi frambuður á nöfnum leikmanna vefjast fyrir
honum og er hann líklegur til að nota nöfn á mönnum úr Borgarnesi
sér til stuðnings í því. Frægt er þegar hann kynnti Örvar
Kristjánsson í Njarðvík sem Háfdán Þórisson í úrslitarimmunni í
fyrra. Þetta á ekki að vera hægt…
Á von á gestum eftir smá í smá upphitun fyrir
leik og svo er þetta einnig síðustu andarökin með Herði
Hornafjarðarfara en hann heldur austur á bóginn á morgun skilst
mér. Jólafríið er næstum uppurið og skólinn á næsta leyti. Vorið
verður svo komið áður en við getum sagt streetball.
Nokkuð gott lag sem pabbi minn náði í um daginn
og leyfði mér að heyra. Það er oftar en ekki góð tónlist sem hann
pabbi bendir mér á. Lagið er með Cat Stevens og heitir "Where do
the children play". Góð pæling hjá honum sem á vel við nú á 21
öldinni þar sem tölvan og tækninýjungar ráða ferðinni.
»
03.01.2007 14:11:16 / heidarh
Það er orðið talsvert mjög langt síðan að ég ritaði hér síðast.
Mjög mikið hefur á daga mína drifið síðan ég benti glöggum lesendum
þessa bloggs á að kíkja inn á nostalgíusíðuna
blog.central.is/borgarnesbasket. Skemmst er frá því að segja að ég
hef ferðaðst vítt og breitt um lendur meginlands Evrópu, hafið
háskólanám og skipt um lið í körfubolta. Hefur KR hlotið þann mikla
heiður að njóta krafta minna í að setja niður körfur og fiska
sóknarvillur. Hef ég nú vetursetu í Vesturbænum fræga þar sem menn
versla í Melabúðinni, fara í Vesturbæjarlaugina og gæða sér á ísnum
í hinni margfrægu ísbúð á Hagamel.
Frá því að ég og félagar mínir, Hörður og Gummi, enduðum
Evrópuferð okkar í byrjun september fluttust ég og Gummi í
kjallaraíbúð við Túngötu. Bjuggum við þar fram undir jól í góðu
yfirlæti. Nú erum við hinsvegar fluttir á annan stað og erum komnir
í hjarta Vesturbæjarins, á Kaplaskjóslveg nr. 31. Á milli
Melabúðarinnar, Vesturbæjarlaugar og Frostaskjóls. Gangan á
Háskólasvæðið hefur styst og einnig í KR-heimilið. Þetta leggst
bara ágætlega í mig. Samt á ég eftir að hugsa með smá söknuði til
Túngötunar. Það var ágætt að dvelja í þeirri íbúð, minnti stundum á
hlýlegt neðanjarðarbyrgi sem ekkert gæti unnið á.
Eftir að ég hafði gist fyrstu nóttina á Kaplaskjólsveginum
skellti ég mér í Vestubæjarlaugina umtöluðu. Hélt ég beint í
heitasta pottinn, það stóð nú á skilltinu 42°C-44°C en ég held að
það hafi verið mun heitara. Það leið ekki á löngu að mér leið eins
og ofheitu harðsoðnu eggi sem þarfnaðist kælingar undireins og
skellti ég því mér beint út í kalda laugina. Er ég hafði komist til
vits að nýju kannaði ég umhverfið og heyrði kunnulega rödd koma frá
einum af heitu pottunum. Þessa rödd hef ég heyrt í fjölmiðlum frá
því að ég man eftir mér og var við hæfi að hún ómaði í sundlaug
Vesturbæjar. Þetta var enginn annar en Bjarni Fel, einn frægasti
KR-ingur fyrr og síðar að ræða heimsmálin við aðra gamla KR-inga.
Það lá við að ég hæfi að syngja stefið úr enska boltanum...
Eftir sundið og stuttan hádegisverð úr Brauðbergi hélt ég
áleiðis í Þjóðarbókhlöðuna, þar sem ég sit nú og skrifa þessi orð.
Maður reynir að slaka og gera eitthvað sniðugt þangað til að maður
byrjar í háskólanum að nýju 11. jan. Ég er að hugsa um að slíta
þessu núna en ætla að enda þetta á ljóðlínum Tómasar Guðmundssonar
úr ljóðinu "Austurstræti" fyrir góðvin minn og fagurkera Hörð
Unnsteinnson.
Og samt var stöðugt yfir okkur kvartað,
og eflaust námið gengið tregt.
Við lögðum aðaláherzlu á hjartað,
því okkur þótti hitt of veraldlegt.
»
14.05.2006 19:47:10 / heidarh
Helgin var viðburðarík, ef svo má að orði komast en atburðum er
lýst á mjög góðan hátt af honum Herði á síðunni www.blog.central.is/borgarnesbasket
Ég mæli með að fólk lesi þetta því að þetta er hin skemmtilegasta
lesning.
»
07.05.2006 20:48:14 / heidarh
Best að skella inn einni
færslu svona í tilefni góða veðursins. Haldið var lokahóf
körfuboltans í gær og fór veislan fram á hinu nýja Golfhóteli
Hamri en það má segja að þar sé ein mynd framtakseminar í
Borgarnesi. Að sjálfsögðu var maturinn dýrindisgóður og menn í
góðu skapi. Mér var veitt viðurkenning fyrir mestu framfarir á
liðnum vetri og er ég hinn ánægðasti yfir því. Jovan var svo
valinn leikmaður ársins. Þá er körfuboltanum á þessari leiktíð
formlega lokið og sumarið tekur við með allri sinni sól og
blíðu. Ég vaknaði svo í morgun á stað sem ég hélt að ég myndi
aldrei vakna á en við félagarnir spiluðum Double Dribble og
World Cup1990 í Nintendo þar í gamla daga. Þetta er að
sjálfsögðu undir stiganum hjá Herði en þar endaði ég
gærkvöldið, þreyttur og talsvert kenndur. Er maður
kemur til Harðar í Berugötuna þá hellast yfir mann minningarnar
af æskuárnum. Fótbolti á sýslumannstúninu, körfubolti í
kjallarnum, spil í Nintendo, Yatzy í eldhúsinu og síðast en ekki
síst nýbakaðir kleinuhringir með glassúr. Þetta voru góðir
tímar.
Það verður gaman að komast
út síðla sumar en við strákarnir höfum ákveðið að leggja land undir
fót. Aftur verður Evrópa tekin með pompi og pragt og að þessu sinni
verður Heiðar nokkur Lind með í för. Það verður gaman að geta
skoðað nýja staði með félögunum og kynnst nýju fólki, að lifa
lífinu í sinni réttu mynd.
Nóg að sinni
Heiðar Lind
»
01.05.2006 13:05:54 / heidarh
Jæja, nú ætla ég
að halda áfram að tala um hinn víðförla Pink Panther. Í þetta
skipti verður útskýringum um hann safnað undir flokknum, The
Pink Panther. Svo getur nú vel verið að fleiri skemmtilegar
fígúrur bætist í hópinn.
Vel á minnst þá var það
í fréttunum áðan að tvö af þekktustu ljóðskáldum Rússa, þeir
Vyacheslav Boromov og Dimitry Kostgov, eru á
leiðinni til að lesa sín frægustu ljóð á vökukvöldi í
Valfelli. Þessi tveir eru heiðursborgarar í borginni Kalíngrad
við Eystrasalt og eru nefndir Eystrasaltsskáldin þar í borg
sem og, um alla Evrópu. Ekki náðist að ræða
almennilega við þá en þeir kváðust vera þreyttir og ætluðu að
leggja sig. Þeir munu væntalega ræða málin undir rauðvínsglasi og
sígarettu eftir lesturinn í kvöld.
 
Vyacheslav Boromov
& Dimitry Kostgov
»
30.04.2006 01:45:45 / heidarh
Það er alltaf gaman að hanga með
félögunum, það er ekki til neitt betra nú til dags. Maður er
manns gaman á svo sannarlega við. Lokaball NFFA var í gær á
Breiðinni á Skagz, svo ég noti nú gamla frasa á þetta. Margt um
manninn þar en fyrir ballið fengum við okkur öl heima hjá mér
hérna á Kveldúlfsgötunni. Það er ekki hægt að segja annað en að
glatt hafi veriða á hjalla, mörg skot og comment fuku. Ekki var
brotinn neinn stóll að þessu sinni, en stólabrjóturinn óþægi
hefur haft hægt um sig síðustu misseri. Hörður var mættur að
vanda og sýndi vináttu sína í verki er hann splæst áfengi á allt
heila galleríið, góður drengur þessi Hörður þá hann sé algjör
jakki oft á tíðum. Við fengum svo góðvin okkar hann J-Mack til
að keyra okkur út á Skaga. Eftir að hafa hent 2000 kalli í hann
voru honum allir vegir færir og héldum við áleiðis á ball. Ég
get ekki beðið eftir því að heimsækja Makedóníu í sumar er við
höldum í Evrópureisu í Ágústbyrjun. Þá verður sko gleði. Ballið
fer inn í pakkan "eitt af þessum böllum" en það var í góðu lagi,
gaman að hitta krakkana aftur sem voru í skólanum með manni. Er
ballið var búið vildi það ekki betur svo til að rútan stakk
okkur af. Nú reyndust góð ráð dýr, en þá kom Maren mér og
Guðmundi til bjargar og fengum við náttstáð á Skaganum þessa
nótt. Guði sé lof fyrir Mareni og hennar gestrisini, takk enn og
aftur! Morgunin eftir héldum við svo til Harðar, þessa eina
sanna, og reyndum með besta móti að vekja Rúnar Óla af værum
svefni til að keyra okkur heim. Rúnar reyndist svo vera utan
þjónustusvæðis og beindust því öll spjót að honum Herði. Að
sjálfsögðu var málið leyst á mjög svo Hörðskan hátt og bíll
fenginn lánaður til heimkeyrslu. Þar sannaðist hið forkveðna
,,þetta reddast".
Alltaf gaman að svona
atburðarrásum, en maður hefði alveg eins getað sofið allan þennan
tíma. Í staðinn verður til enn ein sagan sem muna óma í næstkomandi
partýum og hófum. Ég veit ekki hvað ég á að segja meira kannski að
ég tali um kvöldið í kvöld á morgun eða geri það bara ekki. Ég vill
þó bæta við viðurnefnum á félaga mína svona í lokin: Gummi úlpa,
Rúnki band, Hörður jakki, Bjarni bolur, Konni kápa, Svanberg sápa,
Heiddi húfa og síðast en ekki síst Addi allrahanda.
Hansson
salutes

»
25.04.2006 00:13:46 / heidarh
Sælt veri fólkið enn og aftur. Ekki hef ég sinnt vel bloggi þessu
en mun nú gera heiðarlega tilraun til að skóta því aftur upp í
vinsældum áhugafólks um Heiðar Lind Hansson. Um þessar mundir er
vorið að ganga í garð, sem gleður mitt góða hjarta. Vorið er mín
uppáhalds árstíð, þó þær séu nú allar góðar á sinn hátt. Á vorin er
tími endufæðingar og vakningar, náttúran tekur við sér á nýjan leik
er grasið grænkar, blómin springa út, tré laufgast og farfuglar
syngja, allt til heiðurs vorinu. Vorið er einnig sá tími þegar
skólinn hættir og nemendur bæði ungir sem aldnir gera hlé á skóla
og hverfa inn í sumarið með tilheyrandi lifnaði og ólifnaði. Það er
nú allt óskaplega skemmtilegt þegar öllu er á botninn hvolft. Mörg
hafa vorin verið í mínu lífi og sem betur er eiga þau eftir að vera
fjölmörg í framtíðinni. Ég get nú ekki annað en minnst á körfuna
sem hefur ráðið degi mínum og tilveru síðustu mánuði, sem og
flestra bæjarbúa. Veturinn var skemmtilegur, og sérstaklega
ánægjulegur þar sem ég fékk að taka þátt í leiknum. Og setti meira
segja nokkur körfuboltastig! En nú eru það lyftingar og
tækniæfingar sem gera mig að betri leikmanni. Þær fylgja alltaf
vorinu og sumrinu. Mikið er svo gaman að sjá þá félaga frá
Makedóníu, Jóvan og Dimitar, sem hafa fallið fyrir landi og þjóð.
Þeir ætla að dvelja hér fram í miðjan maí og vinna. Einnig ætla
þeir að ferðast um landið og skoða það besta sem náttúran hér og
þjóðin hefur að bjóða. Mér langar ógurlega að fara að rífast og
skammast um hvað fólk er oft að æsa sig út af engu eða voða litlum
hlutum sem skipta engu máli þegar öllu er á botninn hvolft. Fólk
ætti að hugsa sig um áður en það fer að tuða og skammast út að því
að hafa fengið 100.g Nóa Kropp þegar það vildi 150.g Nóa Kropp. Ja
hérna hvað fólk getur æst sig út af jafn litlum og ómerkilegum
hlutum. Þetta er ágætt að sinni Sjáumst í streetbalinu  Hansson
»
06.03.2006 23:48:32 / heidarh
Ég er búinn að vera að nefna við nokkra félaga mína undanfarna
daga að halda streetball mót í sumar á einhverjum góðviðrisdeginum.
Það er ekkert meira skemmtilegra en að spila körfu undir berum
himni í góðu veðri með félögunum. Því er ekkert til fyrirstöðu að
halda mót þegar vel viðrar. Nafn mótsins yrði "The Rambis
Challenge" og yrði keppt um "The Rambis Cup" eða Rambis
bikarinn. Að sjálfsögðu er þetta tileinkað fyrrverandi
leikmanni L.A. Lakers, Kurt Rambis sem var þekktur fyrir eina
eftirminnilegustu mottu síðari tíma. Þetta er ekkert
venjulegt mót sem fram fer, við munum mæta með allavena tvær
camerur og taka upp öll ósköpin. Að lokum munum við klippa saman
higlight videó frá hverjum leik, og velja 10. bestu tilþrif mótsins
og einnig 10. verstu . Ég myndi halda að það væri best að spila 3
á 3 á eina körfu. Fyrirkomulagið yrði þannig að þeir sem tengjast
Borgarnesbasket klíkunni á einn eða annan hátt er gjaldgengir.
Dregið yrði þá í lið, og loks spilaður einn leikur í einu. Ég held
að 15 manns eða 5 lið sé raunhæft. Allir leika við
alla.
Leikreglurnar yrðu þessar: Sóknin dæmir og boltinn er aldrei út
af. Leikurinn yrði upp í 8 eða eitthvað, eitt stig fyrir körfu, en
það þarf að vinna með a.m.k. tveimur stigum. Eftir mót yrði svo
hóf, grillveisla þar sem hver kemur með sína steik og hin ýmsu
verðlaun afhent. Við gætum meira að segja slegið saman í
bollu! Svo verður partý fram á rauða nótt og skroppið á
eitthvað nálægt ball Klappstýrur eru velkomnar!!
Eruði game?

Það gæti jafnvel farið svo að Kurt Rambis heiðri
okkur með nærveru sinni....
»
04.03.2006 13:16:41 / heidarh
Eftir miklar vangaveltur á áskoranir frá vinum og vandamönnum
ákvað ég að hefja aftur skrif á þessa ágætu bloggsíðu mína. Eftir
að öll helstu dagblöð á Íslandi eru farin verða yfirfull af greinum
eftir háðfugla og digurmælska menn þarf Heiðar
Lind Hansson að taka til sinna ráða, og láta rödd skynsemi,
elju og síðast enn ekki síst trausts, vaka yfir alþýðu landsins.
Let the games begin!
Það var trvial kvöld í gær með Höa og Gumma. Þegar keppni var
frestað klukkan 03:15 stóðu leikar þannig að Gummi og Hörður voru
jafnir með 5.kökur en ég rak lestina með 4. Það hvorki gekk né rak
hjá mér í spurningflóðinu, það er greinilega af sem áður var. Ég er
ekki nema skugginn af sjálfum mér síðan "Gettu Betur Heiðar"
birtist á síðum slúðurblaða í grænni flíspeysu og að lokum brosti
sínu breiðasta í sjónvarpinu. Hann hefði ekki verið lengi að sópa
dindilmennum á borð við Guðmund og Hörð í burtu. En ég held nú
meira að þreytan hafi verið að segja til sín
Þá er ég búinn að virkja þetta ágæta blogg aftur. Ég læt fylgja
mynd af einum eftirminnilegasta körfuboltamanni allra
tíma. Sjáumst síðar!
Heiðar Stagliano

»
29.09.2005 18:11:54 / heidarh
Það er orðið að staðreynd að langt er síðan ég smellti
grein hér inn síðast. Ástæðan er sú að ég hef fært mig inn á
vetrarhagana þ.e.a.s. http://www.blog.central.is/borgarnesbasket Öll
hjörðin er þar saman komin og munu menn vera þar á beit yfir
vetrarmánuðina. Svo er vorar tekur, körfuskotum fer að minnka og
partý að aukast kem ég til með að flytja aftur inn á sumarhagan.
Kannski að maður skelli inn einni og einni grein einhverntíma eða
uppfæri Pantherinn 
Þangað til næst! Þá tékkið bara á borgarnesbasket.
Ciao! Hansson
»
01.09.2005 12:06:28 / heidarh
Guten Dag! Sit hér núna í eyðu þar sem enskukennarinn liggur heima
með lungnabólgu. Vonum að hann nái sér sem allra fyrst. En já,
æfingar á fullu og engin vettlingatök á mönnum sem eru ekki til í
mfl. í körfubolta. Stífar æfingar eru á næstunni en svo verður
farið norður á Akureyri á Greifamót einhverntíma í September. Fyrir
þá sem ekki vita þá eru stórvinir mínir þeir Guðmundur og Geir
staddir í Palestínu þessa stundina. Þeir eru búnir að vera þarna í
viku og heilsast bara vel, eru enn á lífi og svona  nei nei, menn
verða að passa sig þarna úti. Það er mikið um átök og deilur þarna
og rafmagnað andrúmsloft. Ég bið að heilsa ykkur ef þið lesið þetta
og endilega commentið! Svo er aldrei að vita nema að maður skelli
sér í golf í dag. Ég og Old School vorum að pæla að skella
okkur´upp á völl ef að veður leyfa og mér sýnist bara að veðrið sé
í fínu lagi í dag. Svo verður tekið á því á æfingu í kvöld enda.
Það er kominn hádegismatur hérna og stórvinur minn Rúnar vill
komast í fartölvuna sína aftur..ég held að hann eigi einhverja
hidden klámfiles hérna í tölvunni  Sjáumst, Hansson
»
24.08.2005 16:21:57 / heidarh
Skólinn bara bryjaður en fyrsti skóladagurinn einkennist af bið
líkt og fyrri ár þar sem kennarar afhentu einungis stundartöflur og
sögðu nokkur vel valin orð um átök annarinnar. En maður hefur þetta
bara rólegt núna á önninni. Er búin frekar snemma alla skóladagana
eða tvö og fyrr. Samt með 18.einingar en það verður allavena
talsverð vinna í sumum t.d. FRA403 og HSP103 en það er bara
gott.
Í nótt halda Gummi og Geir aftur út í hinn stóra heim eða nánar
tiltekið til Palestínu og Ísraels til að starfa sem aðstoðarmenn á
ráðstefnu á vegum lútherska heimssambandsins. Ég vona að þeir njóti
ferðarinnar og lendi ekki í neinum vandræðum. Þá má varla lyfta
litla fingri þarna úti og þá er hausinn skotinn af manni eða
sprengdur í loft upp. Þeir verða þarna í rúmar tvær vikur. Gangi
ykkur vel strákar! 
Fyrsti leikurinn í Valsmótinu er á morgun er við mætum Njarðvík
kl.20:00. Það verður erfiður róður þar sem hópurinn er þunnur. En
maður berst eins og venjulega Svo leikum við fjóra leiki um
helgina gegn Val, Keflavík, ÍR og Þór Ak. Hörkuleikir!
Veit ekki hvað skal segja meira en jú, Mallorca farar koma
heim í dag og mæta galvaskir í skólan á morgun. Gaman verður að sjá
hver verður brúnastur eða hver verður rauðastur
Salut!
Hansson
»
19.08.2005 18:13:36 / heidarh
Það eru orð að sönnu. Sumarið er senn á enda og skólinn og
karfan að byrja. Er kominn heilu og höldnu frá Danmörku ásamt Palla
frænda. Ferðin var vægast sagt frábær og sáum við mikin hluta
Kaupmannahafnar sem og hittum fullt af frændfólki. Svo keypti maður
glás af drasli þarna úti sem kostaði auðvitað sitt, alltaf jafn
blankur
En já nú er maður bara að æfa á fullu því það styttist í Valsmót
í körfu. Hópurinn er frekar þunnur en við gerum gott úr þessu og
spilum okkkar leik. Svo fara Mackararnir að koma sem og einhver
kani. Jú svo kemur Hörður einhverntíman.... Svo þegar skólinn
byrjar fer allt í fastar skorður aftur og fólk hættir öllum
vitleysisgangi sumarsins. Ég ræddi þetta við einn vin minn um
daginn og við vorum sammála um það að á sumrin fara menn alveg á
limingunum í hinum ýmsu málum en er vetur gengur yfir garð þá slaka
menn örlítið á, non? Endilega kommentið eitthvað um það.
Heyrði alveg svakalega gott lag um daginn sem er frá því herrans
ári 1986. Ég heyrði lagið af og til í útvarpinu er ég var lítill
polli en hef ekki heyrt það lengi. lagið er með hinni rómuðu dönsku
hljómsveit Dodo & The Dodos, og heitir lagið "Giv Mig Hvad Du
Har". Hún er mjög fræg þar í landi og í Skandinavíu held ég bara
líka. Allavena þá átti hljómsveitin fleiri fræg lög hér heima á
borð við: "Vi er rode, vi er hvide" sem var stuðningsmannalag Dana
á HM 1986 og svo "Somand af Verden" sem er líka heví gott lag.
Danir eiga þarna helvíti góða tónlistarmenn og enkennist nýjasti
80's listinn af Dönum núna. Mæli með að þið specið þetta.
En hey, verð að kveðja núna. Hafiði það gott um helgina og þeir
sem fara á menningarnótt eiga að skemmta sér sem allra best.
Veriði ævinlega blessuð
Heiðar Lind
»
11.08.2005 14:52:56 / heidarh
Hansson mættur hér aftur..og skrifar frá København. feråin er
búin ad vera fín en marr vard bara ad skella sér eitthvert út í
sumar. Tad voru allir ad fara eitthvert annadhvort út um allt eda
til Mallorca. Ég og Palle frændi skelltum okkur út til kóngsins
København. Erum búnir ad speca mørg sofn og svona og labba Strøget
tvert og endilangt. í kvold er tad svo Tivoli og sva kannski aftur
á Sunnudaginn. En jó bid ad heilsa ollum heima og ollum mínum ágætu
vinum sem eru á ferdalagi Evrópu. Svo hittumst vid í FVA eftir
hálfan mánud!
Vi ses! Hansson
»
Síður: 1 2 3
|
|